|
| Við erum systkinin Alexander og Monika |
|
|
Um okkur:
Alexander kom í heiminn á kvennadeild Landspítalans þann 15 nóvember 2002 kl 19:34 og var 53 cm og 4400 gr, semsagt 18 merkur. Áætlaður fæðingardagur var 20 nóvember en litla guttanum lá á að mæta á svæðið og kom því aðeins fyrr öllum til mikillar ánægju, enda eftirvæntingin mikil hjá foreldrunum að eignast sitt fyrsta barn. Alexander er líka fyrsta barnabarnið hjá báðum fjölskyldunum og nýtur tvímælalaust góðs af. Alexander var skírður þann 28 desember 2002 á 25 ára afmælisdegi pabba síns og fór skírnin fram í Eskihlíðinni og var það Séra Pálmi Matt sem skírði.
![]()
Monika fæddist á kvennadeild Landspítalans þann 14 mars 2005 kl. 14.31 og var 52 cm og 4035 gr sem eru um 16 merkur. Áætlaður fæðingardagur var 10 mars og lét litla snúlla því aðeins bíða eftir sér. Monika er annað barn foreldra sinna og er svo heppin að eiga stóran bróður sem sér vart sólina fyrir henni. Monika var skírð heima þann 10 apríl 2005 og var það fjölskyldupresturinn hann Séra Pálmi Matt sem sá um það. ![]()
|
|
![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]()
Nafn þetta er upprunnið úr grísku og er sett saman úr forliðnum "aléxein" sem merkir vernd, "anér" sem merkir ef og "andrós" sem merkir maður. Alexander er því verndari
Þegar barn í sporðdrekamerkinu lítur dagsins ljós beinast öll augu að því. Og barnið heldur þeirri athygli í langan tíma því það þarf mikla athygli. Foreldrar mega búast við því að heyja valdabaráttu við litla sporðdrekann því hann ætlast oftar en ekki til þess að pabbi og mamma séu boðin og búin þegar hann þarfnast einhvers (ekki 5 mínútum síðar). Þetta er kraftmikið barn og foreldrar þurfa að vera á verði því þau eru snillingar í að fá fólk til að snúast í kringum sig og nota til þess alls kyns kænskubrögð. Uppeldi sporðdrekans getur skipst í tvö horn því þó hann sé ráðríkur, skapstór og þrjóskur getur hann einnig verið blíður og elskulegur. Það borgar sig ekki að skipa honum fyrir eða ætla að ráðskast með hann. Þó slíkar uppeldisaðferðir séu óhentugar fyrir öll börn geta afleiðingarnar orðið sérstaklega slæmar þegar sporðdrekinn á í hlut. Hann getur lokað á umhverfið, dregið sig inn í skel og orðið stífur og jafnvel árásargjarn. Foreldrar þurfa að fylgjast með tilhneigingu litla drekans til að byrgja inni reiði. Best er að fá hann til að opna sig með því að tala við hann í ró og næði. Sporðdrekar eru mjög næmir á umhverfi sitt og því er mikilvægt að umgangast þá með varúð og hreinskilni. Sporðdrekanum er illa við yfirborðsmennsku og fals og missir auðveldlega álit á þeim sem ekki koma heiðarlega fram við hann.
![]() ![]() ![]() ![]() ![]()
Nafn þetta er ýmist tengt við latnesku sögnina "monere" sem merkir að ráðleggja, eða þá að það er tengt við gríska nafnorðið "monachós" sem merkir einbúi.
Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum. Takk fyrir komuna og ekki gleyma að skrifa í gestabókina okkar, það er svo gaman að geta séð hverjir eru að forvitnast um okkur.
|